Fara í efni

Karfa

Karfan þín er tóm

Umhirða & notkun


Leiðbeiningar fyrir Stálhreiður potta og pönnur

Stálhreiður vörurnar eru gerðar til að endast og gera daglega eldamennsku einfaldari og áreiðanlegri. Með réttum notkunarvenjum heldur pannan sínum bestu eiginleikum í mörg ár.

Hér finnur þú helstu leiðbeiningar um notkun, þrif og viðhald.


Hvernig virkar hybrid uppbyggingin?

Pottar og pönnur frá Stálhreiðri eru úr þriggja laga ryðfríu stáli með ál-kjarna sem tryggir hraða og jafna hitadreifingu. Yfirborðið er með keramík non-stick húðun.

Þessi uppbygging þýðir að:

  • Pannan hitnar hraðar en hefðbundnar pönnur
  • Hiti dreifist jafnt yfir botninn
  • Minni þörf er á háum hitastillingum
  • Non-stick virkni minnkar þörf á mikilli fitu

Vegna þess hve hitadreifingin er skilvirk er yfirleitt best að nota lágan til miðlungs hita.


Fyrir fyrstu notkun

  1. Þvoðu pönnuna með volgu vatni, mildri sápu og mjúkum svampi.
  2. Þurrkaðu vel.
  3. Settu örþunnt lag af matarolíu á yfirborðið og hitaðu létt í 1–2 mínútur.
  4. Þurrkaðu umfram olíu af.

Þetta hjálpar til við að undirbúa yfirborðið fyrir notkun.


Rétt meðferð við daglega notkun

Forhitun

Hitaðu pönnuna í nokkrar mínútur á lágum eða miðlungs hita áður en matur er settur á. Forhitun stuðlar að bestu non-stick virkni.

Forðastu að hita tóma pönnu lengi á háum hita.


Eldun viðkvæms matar (t.d. egg)

Við mat sem festist auðveldlega skiptir þolinmæði máli. Notaðu lágan hita og leyfðu matnum að eldast um stund áður en þú reynir að hreyfa hann.

Ef matur losnar ekki strax er það yfirleitt merki um að hann þurfi aðeins lengri eldunartíma. Þegar hann hefur náð réttum hita losnar hann auðveldlega af yfirborðinu.


Þrif & viðhald

Dagleg þrif

  • Þvoðu með volgu vatni og mildri sápu
  • Notaðu mjúkan svamp eða bursta
  • Þurrkaðu vel

Vörurnar þola uppþvottavél, en handþvottur lengir líftíma.


Mikilvægt að forðast

  • Skyndikælingu (heitt beint undir kalt vatn)
  • Of mikinn hita
  • Grófa stálull eða rispandi hreinsiefni
  • Úðafeiti sem skilur eftir sig leifar

Ef matur byrjar að festast

Ef þú finnur að non-stick virkni minnkar eftir nokkurn tíma í notkun er það yfirleitt vegna uppsafnaðra, ósýnilegra fitu- og matarleifa á yfirborðinu. Þetta þýðir ekki að húðunin sé skemmd.

Þá getur verið gott að gefa pönnunni svokallað „reset“.

Svona gerirðu það:

  1. Blandaðu 1 hluta hvítu ediki og 2 hlutum vatns í pönnunni.
  2. Láttu suðuna koma upp og malla í nokkrar mínútur.
  3. Helltu af og nuddaðu varlega með mjúkum svampi og smá matarsóda.
  4. Skolaðu og þurrkaðu vel.
  5. Settu örþunnt lag af olíu og hitaðu létt í 1–2 mínútur.

Í flestum tilfellum kemur non-stick virkni aftur eftir þessa meðferð.


Ending og umhirða

Með reglulegri og vandaðri umhirðu halda Stálhreiður pottar og pönnur bæði útliti og frammistöðu í langan tíma.

Hybrid uppbyggingin er sterk og hönnuð fyrir daglega notkun, en rétt hitastilling og regluleg hreinsun eru lykilatriði til að varðveita yfirborðið.


Þarftu aðstoð?

Ef þú finnur ekki svar við spurningunni þinni hér er þér alltaf velkomið að hafa samband við okkur. Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu og viljum að þú sért fullkomlega ánægð/ur/t með vöruna þína ✨